Eyðing gagna
Hvernig þú getur fjarlægt Facebook- og Instagram-gögnin þín úr Smass.
Möguleiki 1 — Aftengja inni í Smass
Skráðu þig inn á smass.is, opnaðu Síður og eignir og veldu „Aftengja Facebook". Þá eyðast aðgangslyklar, Facebook síður, Instagram reikningar og auglýsingareikningar úr Smass strax.
Möguleiki 2 — Í gegnum Facebook stillingar
Farðu á Facebook → Settings → Apps and Websites og fjarlægðu „Smass". Facebook sendir okkur þá sjálfkrafa beiðni um eyðingu og við fjarlægjum gögnin þín. Þú færð staðfestingarsíðu með númeri sem þú getur notað í samskiptum við okkur.
Möguleiki 3 — Hafa samband
Sendu tölvupóst á hjalp@smass.is og biddu um eyðingu. Við svörum innan 30 daga og eyðum öllum gögnum sem tengjast þér.
Hvað eyðist?
- Aðgangslyklar (access tokens) að Facebook og Instagram
- Tengingar við Facebook síður, Instagram reikninga og auglýsingareikninga
- Drög og áætlaðar færslur sem þú hefur stofnað í Smass
Athugaðu: Færslur og auglýsingar sem þegar voru birtar á Facebook eða Instagram tilheyra Meta og eyðast ekki sjálfkrafa. Til að fjarlægja þær þarftu að fara inn á Facebook eða Instagram beint.